Skólasetning mánudaginn 24. ágúst

Skólasetning í Breiðholtsskóla verður mánudaginn 24. ágúst 2026 sem hér segir:

 

8:20 – 12:30   2. – 4. bekkur

9:00 -  11:40   5. – 7. bekkur

10:00- 11:30  8. – 10. Bekkur

 

Nemendur mæta með forráðamönnum sínum í hátíðarsal skólans og fara svo með umsjónarkennurum í stofur.

Nemendur í 2. – 7. bekk mæta með nesti fyrir morgunkaffið, allir fá mat í hádeginu áður en þeir fara heim.

 

Nemendur í 1. bekk hafa verið boðaðir í viðtal til umsjónarkennara með foreldrum sínum ýmist á föstudeginum 21. ágúst eða mánudeginum 24. ágúst.

Skólasetning 1. bekkjar verður þriðjudaginn 25. ágúst kl. 8:20  í hátíðarsal. Foreldrar fá um  klukkustundar kynningu á skólastarfinu, strax að lokinni skólasetningu og nemendur fylgja umsjónarkennurum í stofu.

 

Hlökkum til að sjá ykkur!