Bolludagur - Sprengidagur - Öskudagur
Framundan eru viðburðríkir dagar, en Bolludagur, Sprengidagur og Öskudagur eru á næsta leiti.
Í dag, mánudag 16. febrúar er Bolludagur. Hefð er fyrir því að nemendur komi með bollur í skólann til að borða í nestistímanum. Í Snillismiðju í 2. bekk föndruðu nemendur glæsilega bolluvendi.
Miðvikudagurinn 18 febrúar er skertur skóladagur en þá höldum við upp á Öskudag í skólanum. Sú hefð hefur skapast að nemendur mæta í búningum og eða náttfötum í skólann þennan dag og við gerum okkur dagamun.
Nemendur mæta samkvæmt stundaskrá kl. 8:20. Það verður ýmislegt skemmtilegt í boði s.s. leikja- og spilastöðvar, þrautabraut og andlitsmálun. Nemendur í 10. bekk útbúa draugahús sem öllum býðst að kíkja inn í.