Heilsuvernd í Breiðholtsskóla
Heilsuvernd skólabarna er framhald af ung- og smábarnavernd. Skóla-heilsugæslan leitast við að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Starfsfólk heilsugæslu vinnur í náinni samvinnu við forsjáraðila, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda. Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál. Heilsuvernd skólabarna í Breiðholtsskóla er á vegum Heilsugæslunnar í xxx.
Sé þörf á geta forsjáraðilar leitað til Suðurmiðstöðvar varðandi aðstoð tengda heilsugæslu barns síns.
Helstu áherslur í heilsuvernd skólabarna eru forvarnir, heilbrigðisfræðsla, skimanir og bólusetningar. Unnið er samkvæmt leiðbeiningum Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu um heilsuvernd grunnskólabarna. Frekari upplýsingar um heilsuvernd skólabarna má finna á heilsuvera.is undir leitarorði „heilsuvernd grunnskólabarna“.
Hagnýtar upplýsingar
Veikindi og slys
Ef óhapp eða slys verður á skólatíma sér starfsfólk skólans um fyrstu hjálp. Þurfi nemandi að fara á heilsugæsluna eða slysadeild skulu forsjáraðilar fara með barninu. Því er mikilvægt að skólinn hafi öll símanúmer þar sem hægt er að ná í þá á skólatíma barnsins. Ekki er ætlast til að óhöppum sem gerast utan skólatíma sé sinnt af heilsuvernd skólabarna.
Langveik börn
Mikilvægt er að hjúkrunarfræðingur í heilsuvernd skólabarna viti af börnum sem eru með fötlun eða langvinnan og/eða alvarlegan sjúkdóm, s.s. sykursýki, ofnæmi, flogaveiki, blæðingarsjúkdóma eða aðra alvarlega sjúkdóma. Hlutverk hjúkrunarfræðingsins í heilsuvernd skólabarna er að skapa þessum börnum viðeigandi aðstæður og umönnun í skólanum í samvinnu við foreldra/forsjáraðila og starfsfólk skólans.
Lyfjagjafir
Samkvæmt tilmælum landlæknis um lyfjagjafir í grunnskólum eru sérstakar vinnureglur varðandi lyfjagjafir til nemenda á skólatíma. Mikilvægt er að forsjáraðilar barna sem þurfa að taka lyf á skólatíma hafi samband við hjúkrunarfræðing í skólanum.
Skipulag og þjónusta við nemendur
Reglubundnar skoðanir og bólusetningar
1. bekkur: Sjónpróf, hæðarmæling og þyngdarmæling.
4. bekkur: Sjónpróf, hæðarmæling og þyngdarmæling.
7. bekkur: Sjónpróf, hæðarmæling og þyngdarmæling. Bólusett gegn mislingum, rauðum hundum og hettusótt (ein sprauta). Stúlkum er boðið upp á bólusetningu v/leghálskrabbameins (cervarix) – sem eru tvær sprautur.
9. bekkur: Sjónpróf, hæðarmæling og þyngdarmæling. Bólusett gegn stífkrampa, barnaveiki, kíghósta og mænusótt (ein sprauta).
Nemendur í öðrum árgöngum eru skoðaðir ef ástæða þykir til eða ef foreldrar og kennarar óska eftir því. Skólaheilsugæsla fylgist einnig með því að börn hafi fengið þær bólusetningar sem tilmæli landlæknis segja til um. Ef börn hafa ekki fengið fullnægjandi bólusetningar verður haft samband við foreldra.
Svefn, nesti og skjólfatnaður
Reglulegur og nægjanlegur svefn er mikilvægur fyrir heilsu og þroska barna. Börn þurfa að sofa 10 - 12 klst. á nóttu. Skóladagur nemenda er langur, mikilvægt er að borða reglulega og hafa með sér hollt og gott nesti. Einnig er mikilvægt að nemendur séu klæddir eftir veðri.
Hafa samband
Skólahjúkrunarfræðingur Breiðholtsskóla er Birgitta Jónsdóttir
Viðtalstími er eftir samkomulagi.
Netfang: breidholtsskoli@heilsugaeslan.is
Sími í skóla: 411 7450.
Viðverutími hjúkrunarfræðings við skólann er alla mánudaga frá kl. 8:30 - 12:00.
Ýmsir fundir í tengslum við starfið falla undir þennan tíma.