Útskrift, skólaslit og sumarfrí

utskrift10argangs

Og þá hefst sumarfríið!

Í gær var 2010 árgangurinn útskrifaður úr Breiðholtsskóla með glæsibrag. Ísabella, Birgir, Jasmín og Jóhann fluttu hugljúfa ræðu fyrir hönd nemenda og Sif, Jóhann og Berglind kennarar fylgdu fast á eftir. Nokkur tár runnu við þessi fallegu orð á báða bóga. Birtir spilaði tvö lög á píanó og við fengum að sjá myndband með myndum af nemendum síðan þau voru að hefja skólagöngu sína í 1. bekk. Á eftir voru bornar fram veitingar í matsalnum. Við kveðjum þennan flotta hóp með söknuði en líka bjartsýni og óskum um frábæra framtíð.

Í dag voru skólaslit hjá 1. – 9. bekk þar sem sýndar voru myndir af fjölbreyttum viðburðum á skólaárinu.

Við þökkum ykkur öllum fyrir skólaárið og óskum ykkur gleðilegs sumars.

Skólasetning verður 24. ágúst 2026. Sjáumst hress þá!