Færeyingar heimsóttu 7.bekk

færeyjaheimsókn

Í gær, þriðjudaginn 14. apríl komu 17 nemendur og þrír kennarar frá Færeyjum í heimsókn til 7. bekkjar í Breiðholtsskóla.

Það var þjöppuð dagskrá þegar 7. bekkur Breiðholtsskóla tók á móti Færeyskum jafnöldrum sínum og kennurum þeirra. 

Fyrst um morguninn var hópunum hrist saman og tækluðu nokkur verkefni saman. Til dæmis fengu þau 20 orð á báðum tungumálunum til þess að glíma við. Færeyingarnir áttu erfitt með orðið buxnaskálm og togari en íslendingarnir áttu erfitt með orð eins og at fletta og slupp.

Okkar nemendur gerðust glæsilegir leiðsögumenn þegar þau röltu með gestunum um skólann okkar og kynntu það starf sem hér fer fram. Færeysku kennararnir höfðu sérstaklega orð á að skólinn væri barnavænn skóli.

Að því loknu var danssýning á sal þar sem nemendur Breiðholtsskóla sýndu skemmtileg atriði og síðan var tekið lagið 'Góðan daginn' og sungið í keðjusöng.

Færeyingarnir sýndu líka dans og sungu og að lokum fóru allir á gólfið og dönsuðu færeyskan hringdans sem vanalega eru 250 erindi í söng og tæki 4 tíma að flytja, en hópurinn ákvað að láta 2 erindi duga.

Að lokum var farið niður í Elliðaárdal með nesti, farið að fossinum og leikið smá.

Gestirnir færðu okkur 2 litla fána að gjöf og kort með mynd af „risanum og kellingunni“. Við gáfum gestunum 2 eintök af Orð eru ævintýri.