Breiðholtsskóli í úrslit í Skrekk og fótboltamóti
Breiðholtsskóli í úrslit í Skrekk og Grunnskólamóti Reykjavíkur í fótbolta
Unglingarnir í Breiðholtsskóla hafa staðið sig frábærlega í vikunni. Á mánudaginn komst Skrekkshópurinn okkar áfram í úrslit og á miðvikudaginn fóru strákarnir áfram í úrslit á Grunnskólamóti Reykjavíkur í fótbolta.
Við erum öll að springa úr stolti og gleði yfir þessum flotta árangri. Úrslitakeppnirnar verða síðan í næstu viku svo það eru spennandi dagar framundan.
Áfram Breiðholtsskóli !!!