10.JPK sigurvegarar Fél-for Kviss 2026

félforleikar2026

Úrslitakeppni í Fél-for Kviss, árlegri spurningakeppni unglingastigs í félagsfærni og forvörnum, fór fram á hátíðarsal í dag. 

Í úrslitum kepptu nemendur úr 10.JPK og 9.SÆV og stóðu bæði liðin sig með eindæmum vel. Keppnin var æsispennandi en að lokum bar 10.JPK sigur úr býtum.

Félagsfærni og forvarnir er námsgrein sem kennd er á unglingastigi. Þar vinna nemendur fjölbreytt verkefni tengd samskiptum, kynheilbrigði og alls kyns forvarnarstarfi, t.d. tengdu viku6. Segja má að Fél-for Kvissið sé eins konar uppskeruhátíð eftir kynfræðslulotu.