Vorhátíð Breiðholtsskóla og starfsdagur

Vorhátíð Breiðholtsskóla er í dag kl 16-18
Það er Foreldrafélag Breiðholtsskóla, í samstarfi við Bakkasel og skólann sem stendur að henni, eins og venjulega.
Það er glæsileg dagskrá sem byrjar á tónleikum Skólahljómsveitarinnar og svo tekur hátíðin við með alls konar leiktækjum og atriðum.
Vorhátíðinni lýkur kl. 18.
Foreldrar eru velkomnir, og afar og ömmur! og reyndar er mjög gott að yngri börnin séu ekki send ein.
Veðurspá: það gæti rignt smávegis en ef við biðjum veðurguðina fallega þá verður vonandi bara ágætis veður – miðað við Ísland.
Minnum á að á morgun, 23. maí, er starfsdagur í Breiðholtsskóla og mæta nemendur ekki í skóla þann daginn.
Breiðholtsskóli, Foreldrafálagið og Bakkasel