Appelsínugul viðvörun 5.-6. febrúar

Veðurstofa Íslands hefur gefið út appelsínugula veðurviðvörun fyrir höfuðborgarsvæðið vegna mikils hvassveðurs sem spáð er næstu tvo daga. Börn upp í tólf ára aldur gætu þurft fylgd.
Gildir viðvörunin frá kl. 14:00 miðvikudaginn 5. febrúar til kl. 17:00, fimmtudaginn 6. febrúar.

Frekari upplýsingar um veðurspá er að finna á https://www.vedur.is/vidvaranir/svaedi/rvk.
Forsjáraðilar leggja ávallt sjálfir mat á það hvort fylgja þurfi barni í eða úr skóla vegna veðurs, óháð því hvort tilkynning hafi borist frá yfirvöldum. Meti forsjáraðilar aðstæður svo að ekki sé óhætt fyrir börn þeirra að sækja skóla skulu þeir tilkynna skólanum það sem lítur þá á tilvikið sem eðlilega fjarvist. Sama gildir ef börn eða forsjáraðilar lenda í vandræðum á leið sinni til skóla og verða frá að hverfa.
Leiðbeiningarnar má nálgast með eftirfarandi slóð á íslensku, ensku og pólsku:
https://www.shs.is/hvad-get-eg-gert/roskun-a-skolastarfi