Ljós og skuggar í 1. bekk

Skuggamyndir

Nemendur í 1. bekk voru að læra um ljós og skugga og gerðu allskonar skuggamyndir. Þau veltu fyrir sér hvernig skuggi verður til og hvernig þau gætu látið skuggann sinn hverfa.

 

Nemendur komu með vasaljós að heiman síðan fengu þeir álpappír og bjuggu til manneskju/skrísli. Fengu sýnikennslu fyrst hvernig það er hægt að móta ýmislegt með álpappír og fengu svo að láta sköpunarkrafta sína njóta sín. Fígúran var síðan fest með límbyssu á pappaspjald.

Rúllugardínur voru síðan dregnar niður þannig að hægt væri að lýsa með vasaljósi á fyrirbærið og framkalla skugga bæði litla og stóra.

Þetta var virkilega mikil upplifun fyrir börnin og mikið fjör.