VÆB frumfluttu lag Barnamenningarhátíðar 2026

væb-barnamenningarhatið

Það var mikið fjör í Breiðholtsskóla í gær þar sem þar sem lag Barnamenningarhátíðar 2026 var kynnt á blaðamannafundi í hátíðarsal skólans.

Nemendur í 3. og 4.bekk tóku þátt og fengu að sjá þegar VÆB bræður stigu á svið og frumfluttu lagið  sem var samið í samvinnu við 4. bekkingja í grunnskólum í Reykjavíkur.

Þema hátíðarinnar í ár er samkennd og samfélag og fengu nemendurnir það verkefni að svara ýmsum spurningum um hvað felist í samkennd og samfélagi. Texti lagsins er byggður á svörum barnanna og fékk heitið "Sama hver það er".

Barnamenningarhátíðin fer fram dagana 20. - 26. apríl og er borgin öll vettvangur hátíðarinnar.